Quantcast
Channel: DV.is - RSS straumur
Viewing all articles
Browse latest Browse all 10741

Gul mengunarslikja liggur yfir sundunum

$
0
0

Gul mengunarslikja hefur legið yfir Vesturlandsvegi og sundunum nú í morgun. Svava S. Steinarsdóttir, hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, segir í svari við fyrirspurn DV að um sé að ræða niturdíoxíðmengun sem stafi af útblæstri bifreiða. „Hún er vel sýnileg á dögum sem þessum þegar vindur er mjög hægur, þá dreifist mengunin síður.“
Hún segir að Niturdíoxíðmengunin sé hæst eftir umferðartoppa á morgnanna og í eftirmiðdaginn. „Niturdíoxíðmengun hefur verið há undanfarið þar sem hægur vindur hefur verið ríkjandi.“
Þar sem mengunarskýið má rekja til útblásturs bíla ber að geta þess að díselbifreiðar losa á bilinu 5 til 20 sinnum meira af niturdíoxíð (NO2) en bensínbifreiðar sem aftur losa meira af gróðurhúsalofttegundinni koldíoxíð (CO2).
Dísilbifreiðum hefur fjölgað mikið hér á landi á undanförnum árum. Sem dæmi um það má nefna að árið 1995 var hlutfall fólksbíla með dísilvélar 5,5% af bílaflota Íslendinga en árið 2014 voru þeir orðnir 24%. Árið 2016 voru 49% allra nýrra bíla dísilbílar á móti 36% bensínbíla.
Sé haft í hug að díselbílar losa 5-10 sinnum meira af sóti en bensínbílar er óhugnanlegt til þess að hugsa að dísilsót er krabbameinsvaldandi.
Hér má sjá myndir af menguninni.













Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari













Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari


Viewing all articles
Browse latest Browse all 10741