Um helgina var greint frá því í dagbók lögreglu að maður í annarlegu ástandi hefði gengið berserksgang í verslun Hagkaups í Eiðistorgi. Atvikið átti sér stað rétt eftir miðnætti, aðfaranótt sunnudags, og þegar lögreglu bar að garði þá grýtti gerandinn meðal annars páskaeggi í lögreglumann.
Á samfélagsmiðlum hefur nú verið birt myndband af uppákomunni. Þar má sjá manninn ganga berserksgang og rústa hverju því páskaeggi sem hann kemst höndum yfir. Unnendur rjómasúkkulaðis eru varaðir við áhorfinu:
↧
Gekk berserksgang á Eiðistorgi: Rústaði stórri stæðu af páskaeggjum - Sjáðu myndbandið
↧