Quantcast
Channel: DV.is - RSS straumur
Viewing all articles
Browse latest Browse all 10741

„Hann fór sínar eigin leiðir í lífinu“

$
0
0

„Þetta átti ekki að geta gerst,“ segir Bryndís Fjóla Ingimarsdóttir, móðir Bjarna Salvars Eyvindssonar, 19 ára, sem lést af slysförum í Suður-Afríku þann 18. febrúar síðastliðinn, en þar hugðist hann að dvelja í tvær vikur. Bryndís kveðst óendanlega þakklát fyrir stuðninginn síðustu vikur en hún er nýkomin heim frá Höfðaborg þar sem hún dvaldi í nokkra daga til að ganga frá hinum ýmsu málum er tengjast andláti Bjarna.
Vildi enga aðstoð
„Þessi ferð var í senn erfið og gefandi. Við hittum fólkið sem hann var mest með, krakkana á barnaheimilinu þar sem hann vann og sáum fátækrahverfið sem hann talaði svo mikið um. Við fengum knús frá alls konar fólki og allir í þorpinu vissu upp á hár hver við vorum. Allir stóðu við bakið á okkur.“
Líkt og áður hefur komið fram lést Bjarni samstundis eftir höfuðhögg þegar hann féll niður af útsýnissyllu á Table Mountain við Höfðaborg.
Bjarni hafði verið í fjallgöngu með tveimur félögum sínum þegar slysið átti sér stað. Að sögn Bryndísar virðist sem Bjarni hafi orðið viðskila við félaga sína eftir að hann ákvað að snúa við. Félagarnir vildu halda áfram en buðust til að fylgja honum niður. „Þeir vildu fara með honum niður en Bjarni harðneitaði. En svo hefur hann hætt við að fara niður og hélt áfram upp fjallið.“ Strákarnir sem hann var með voru heldur ekki þeir síðustu sem sáu hann á lífi eins og talið var í fyrstu. Til dæmis gaf bandarískur ferðamaður sig á tal við Bjarna. „Þessi maður, sem og fleiri göngugarpar sem sáu Bjarna einan á ferð, buðu fram aðstoð sína sem Bjarni afþakkaði.“
Þjakaðir af samviskubiti
Bryndís segir að á þessum tímapunkti hafi ekki verið komið vont veður á fjallinu líkt og greint var frá í íslenskum fjölmiðlum skömmu eftir slysið. „Þetta rok sem var talað um kom síðar. Bakpokinn hans fauk, skórnir hans voru týndir og fötin rifin þegar hann fannst.“
Þá segir Bryndís að vinir hans hafi verið þjakaðir af samviskubiti yfir að hafa skilið við Bjarna á fjallinu. „Þeir kenndu sér um þetta. Grey strákarnir. Bæði ég og fósturpabbi Bjarna sögðum við þá að þetta væri alls ekki þeim að kenna. Þeir hefðu ekki getað gert neitt öðruvísi. Það var ekta Bjarni að afþakka fylgdina og gera hlutina upp á eigin spýtur, þrátt fyrir að vera lögblindur. Hann var svo gríðarlega þrjóskur og lét fötlunina aldrei stoppa sig.“
Að ferðast til Suður-Afríku var ekki fyrsta ferðalagið sem hann lagði upp í einsamall en Bjarni hafði áður ferðast til Búdapest og London. „Bjarni fór sínar eigin leiðir í lífinu þrátt fyrir að hann gerði flest með samþykki fjölskyldunnar. Hann var mjög ábyrgur og átti sér marga drauma. Ég hefði ekki getað stoppað hann enda engin ástæða til.“
Á heimavelli
Bjarni var lögblindur sökum fæðingargalla en hann fæddist með skarð í augnbotninum. Hann var alveg blindur á öðru auganu og með 20 til 30 prósent sjón á hinu. „Hann átti að ganga með hvíta stafinn en harðneitaði að gera það. Bjarni sá alveg furðumikið. Hann fór til dæmis oft í bíó og notaði símann sem stækkunargler. Þá vann hann við afgreiðslustörf í 10-11 og á frístundaheimili fyrir börn.“
Bryndís segir son sinn alla tíð hafa verið mjög barngóðan. Hann var á heimavelli í frístundaheimilinu og í Suður-Afríku var hann mjög hrifinn af börnunum á barnaheimilinu sem hann starfaði á vikuna áður en hann lést. „Hann sendi mörg snöpp á okkur og þar sést alveg hvað börnin sóttu í hann og voru strax byrjuð að hnoðast í honum. Það var alveg í hans anda að velja þetta enda var táknið hans á leikskóla „góður“. Hann var svo ótrúlega hlýr og gefandi.“
Gefandi ferðalag
Ferðalagið til Suður-Afríku gekk að sögn Bryndísar vonum framar. Á sama tíma og það var sárt fyrir hans nánustu að vera í umhverfinu sem Bjarni var í dagana áður en hann lést þótti þeim gott að kynnast fólkinu sem hann var í mestum samskiptum við og tala við þá sem komu að málinu.
Félagar Bjarna, sem voru með honum á fjallinu áður en hann lést, gróðursettu tvö tré og gerðu matjurtagarð til minningar um hann. Eitt lime-tré og annað appelsínutré sem táknar „Bittersweet“.
„Síðan fengum við að heyra að það eina sem Bjarni sagðist þurfa að gera úti væri að kaupa afmælisgjöf handa systur sinni sem á afmæli þann 19. febrúar. Hann komst ekki svo langt. Ég keypti afmælisgjöf handa henni frá bróður hennar. Það er líka mikilvægt fyrir okkur að andlát Bjarna sé skráð 18. febrúar svo hún geti fengið að eiga sinn afmælisdag áfram.“
Bryndís fékk að sjá son sinn og kveðja hann eftir að hann var lagður í kistuna í Höfðaborg. Líkið kom til landsins síðastliðinn mánudag en útför Bjarna fer fram í Vífilsstaðakirkju mánudaginn 13. mars næstkomandi.
Styrktarreikningur fyrir fjölskyldu Bjarna
Kennitala: 100477-3439, reikningsnr: 0140-05-071968.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 10741