Hinn 21 árs gamli Connel Arthur kom hingað til lands í ágústmánuði sem skiptinemi frá Skotlandi. Hann þekkti engan en eignaðist strax fjölda vina enda opinn og skemmtilegur strákur. Hann starfaði sem barþjónn á krá í miðborg Reykjavíkur og eignaðist þar eins konar fjölskyldu. Fjórum dögum fyrir jól svipti hann sig lífi og þegar móðir hans, stjúpfaðir og systir komu til landsins til að sækja hann mætti þeim ekkert nema ómanneskjulegt skilningsleysi og peningaplokk að þeirra mati.
Mogwai tileinkaði lag
Connel nam efnafræði í Háskólanum í Glasgow og hann kom hingað til lands á Erasmus-styrk til að læra jarðvarmaverkfræði. Robyn Phaedra Mitchell er frá Vancouver í Kanada og hefur búið hér á landi í fimmtán ár. Hún kynntist Connel daginn sem hann kom hingað til landsins. Í samtali við DV segir hún: „Hann var ótrúlegur. Allir sem kynntust honum elskuðu hann. Hann var klár, mannblendinn og laus við alla feimni. Hann hafði mikinn áhuga á snjóbrettum og útiveru. Einnig hjólabrettum, hann gekk um alla borgina með brettið sitt.“
Tónlist hefur verið mikil ástríða fjölskyldu Connels alla tíð og tónleikar sér í lagi. Móðir hans, Nathalie, og stjúpfaðirinn, Tim Slack, sóttu um 200 tónleika á árinu 2017. Um jólin 2016 fór Connel með þeim að sjá skosku hljómsveitina Mogwai í heimalandinu og fjölskyldan var búin að skipuleggja að heimsækja hann á Íslandi og sjá Mogwai aftur á tónleikahátíðinni Norður og Niður í Hörpu 29. desember.
Vinir Connels hérna á Íslandi vissu ekki að hann glímdi við þunglyndi. Þess vegna kom fráfall hans aðfaranótt 20. desember eins og þruma úr heiðskíru lofti. Hann átti fjölskyldu, kærustu í Englandi og bjarta framtíð. Robyn segist hafa grátið viðstöðulaust. „Ég var í algeru áfalli. Þetta var svo sorglegt. Við vinir hans höfðum heyrt frá honum rétt áður en þetta gerðist. Hann sendi mér gif-myndir af risaeðlum og við göntuðumst. Við vorum algerlega grandalaus um það sem var í vændum.“
Þegar fjölskyldan kom hingað hitti hún hljómsveitarmeðlimi Mogwai og ræddu við þá fyrir tónleikana. Hljómsveitin tileinkaði svo Connel eitt lagið sem þeir fluttu í Hörpu.
Skipað að blása
Háskólinn og Félagsstofnun stúdenta gátu ekki útvegað honum húsnæði þegar hann kom hingað til lands og átti hann í basli allan þann stutta tíma sem hann var hér. Hann bjó á þremur stöðum en var í sífellu að missa íbúðir, meðal annars vegna þess að þær voru leigðar út í Airbnb. Um það leyti sem hann svipti sig lífi fékk hann að gista á Stúdentagörðunum hjá vini sínum.
Vinur hans, kanadískur skiptinemi, kom að honum nokkru seinna og þá var Connel augljóslega löngu látinn. Þegar hann hringdi í neyðarlínuna var honum engu að síður skipað að reyna endurlífgunartilraunir. Það fékk mjög á hann að blása í Connel og hann vissi að það þjónaði engum tilgangi. Þegar lögregluþjónar mættu á svæðið var þeim meira umhugað að vita hvað sá sem fann hann væri að gera þarna en hann var þá í algjöru losti.
Fjölskylda Connels úti í Skotlandi fékk fregnirnar af andláti hans frá Háskólanum og síðan aðstoð frá breska sendiráðinu sem Robyn segir að hafi reynst fjölskyldunni mjög vel. Þau fengu hins vegar ekki að vita hvernig það gerðist, það fréttu þau á samfélagsmiðlum.
Jólafrí hjá lögreglunni
Þann 22. desember voru þau komin til Íslands og fóru á lögreglustöðina til að fá upplýsingar um andlátið og persónulega muni hans. Þar var þeim sagt að koma aftur eftir viku þar sem svo margt starfsfólk væri í jólafríi. „Sá sem sagði þeim þetta var þá með munina hans inni á skrifstofu en sagði þeim engu að síður að koma seinna. Þau fengu ekki að sjá neinar skýrslur eða vita neitt. Þau vissu ekkert hvað þau áttu að gera, nýbúin að missa son sinn, á jólunum og í landi sem þau þekktu ekki.“
[[53CD0D8AF7]]
Sem betur fer fyrir fjölskylduna var Connel vinmargur og vinir hans hér hjálpuðu fjölskyldunni eins og þeir gátu. Þeim var ekki boðin nein áfallahjálp eða sálfræðiaðstoð. Skiptineminn sem kom að Connel þurfti að segja fjölskyldunni hvernig þetta gerðist og fara með þau á staðinn. Robyn segir: „Við sátum þarna og héldumst í hendur á meðan hann sýndi okkur hvernig þetta hafði gerst.“ Nemanum sem var með stúdentaíbúðina á leigu var síðan gefinn tveggja vikna frestur til að yfirgefa hana vegna þess að hann hefði leyft Connel að vera þar.
Það var ekki fyrr en Robyn setti inn færslu á Facebook að lögreglan tók við sér, hafði samband við fölskylduna og lét þau fá síma, veski og aðra muni Connels. Tim var þá sagt að einhver hjá lögreglunni hefði séð færsluna.
Fengu innheimtubréf meðan þau sáu son sinn í hinsta sinn
Að flytja lík erlends ríkisborgara til heimalands kostar um eina milljón íslenskra króna. Skólastjóri háskólans í Glasgow hafði samband við fjölskylduna að fyrra bragði og bauðst til þess að skólinn borgaði flutninginn. En þegar útfararþjónustan sendi þeim reikningsyfirlit yfir annan kostnað brá þeim heldur betur í brún því hann hljómaði upp á 700 þúsund krónur.
[[ECC358695A]]
Sumt af því sem þar var listað kom þeim ekki á óvart, svo sem smurning líksins. En þegar þau skoðuðu yfirlitið sáu þau að rukkað var fyrir hluti sem þau höfðu ekki beðið um eða datt aldrei í hug að yrði rukkað fyrir. Þau voru rukkuð fyrir hvern tölvupóst og hvert orð í hverjum tölvupósti, túlkaþjónustu á hvern tölvupóst og hvert orð í hverjum tölvupósti, hvert símtal (talið í 30 sekúndna einingum), þýðingu á dánarvottorði, túlkaþjónustu þó að aldrei hafi verið neinn túlkur á svæðinu, líkskyrtu sem þau báðu aldrei um, lögfræðiþjónustu án þess að vita að þau væru að tala við lögfræðing og fleira. Þeim var einnig sagt að ef þetta yrði ekki staðgreitt áður en þau færu úr landi færi Connel ekki með þeim.
Fjölskyldan sá Connel í síðasta skipti 4. janúar áður en kistunni var lokað. Þá var önnur útför í gangi í kapellunni í næsta herbergi og lögfræðingur útfararstofunnar var inni á skrifstofu að senda Tim tölvupóst með ítrekun á innheimtunni: „Það er alltaf erfitt að nefna það í svo sorglegu máli, en við þurfum að fá greiðslu í dag eða snemma á morgun. Heildarupphæðin er 698.802 IKR og bankanúmerið er xxx.“
Fjölskyldan komst heim til Skotlands með Connel þann 6. janúar eftir samningalotu við útfararstofuna og Háskólann í Glasgow. Hann verður jarðaður á næstunni í athöfn sem send verður út á Apple TV svo fjölmargir vinir hans víða um heim geti fylgst með.
↧
Skiptinemi svipti sig lífi á Íslandi: Fjölskyldan rukkuð á kveðjustund
↧